Það verður nóg af æfingum í boði í Afreki um jólin og fullt af skemmtilegum svita framundan. Samhliða þessu verður hægt að sjá æfingar sjö daga fram í tímann í Wodify-appinu út desember ef fólk vill byrja að skipuleggja sig.
Jólaopnun er eftirfarandi:
- Þorláksmessa: Venjuleg opnun fram yfir hádegisæfingar en lokum eftir þær (um klukkan 13).
- Aðfangadagur: Þrjár æfingar, kl. 8, 9:05 og 10:10
- Jóladagur: Tvær æfingar, kl. 10:10 og 11:20
- Annar í jólum: Helgaropnun
- Gamlársdagur: Helgaropnun
- Nýársdagur: Tvær æfingar; 10:10 og 11:20
Hlökkum til að æfa með ykkur um jólin!